4.12.2008 | 09:54
Nei Davíð, Nei!!!
Nú er ég svo aldeilis gjörsamlega forbit. Held að íslenska þjóðin þurfi margt frekar en afturgöngu Davíðs Oddsonar í pólitíkinni. Þessi persónugervingur valdagrægði og hroka ætlar virkilega aldrei að láta sér segjast. Nú hótar hann endurkomu í pólitíkina verði hann þvingaður úr Seðlabankanum. Þurfum við á því að halda að skapari þessa einkavædda fjármálaskrímslis sem er að éta okkur öll, snúi til baka í pólitíkina? Nei, það held ég varla. Þessi hugmynd hans er að mínu mati ekkert annað en óvirðing við þjóðina, þvergirðingsháttur, hroki og yfirgangur á hæsta stigi.
Af hverju getur maðurinn ekki fundið sér eitthvað annað að gera? Eitthvað sem skaðar ekki þjóðina. Hann er til dæmis þokkalega ritfær, af hverju fer hann ekki bara upp í sumarbústaðinn sinn og helgar sig skriftum? Hans valdatími er liðinn, af hverju getur hann ekki sætt sig við það? Þeir félagar Davíð og Björn Bjarna væru örugglega fínir heima hjá öðrum þeirra í tindátaleik þar sem þeir gætu leikið með íslenskar krónur (úr plasti), vopnaðar sérsveitarlöggur (úr plasti) og önnur hugðarefni sín (úr plasti). Bara að þeir fari að hleypa öðrum í valdastólana.
Í leikskóla dóttur minnar er starfað eftir kerfi sem byggir á áminningum (Töfrar 1,2,3). Við fyrsta og annað brot fá börnin áminningu en brjóti þau af sér í þriðja sinn þurfa þau að sitja á stól í tiltekinn tíma. Er ekki tími til kominn að Davíð stígi niður úr valdaturni sínum, setjist á koll úti í horni og hugsi um afleiðingar gjörða sinna eins og leikskólabörnin þurfa að gera? Hann hefur fengið áminningar án þess að láta sér segjast.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.12.2008 | 13:14
Bókaflóð
Þegar jólabókaflóðið skellur á er óhemju gaman að vera bókavörður...væri örugglega enn skemmtilegra ef stofnunin ætti nægan pening til bókakaupa. En þökk (lesist sem öfugmæli eða háð) sé græðgi og hroka íslenskra ráðamanna undanfarin ár sem hefur orsakað þetta auma efnahagsástand, þá er því ekki alveg að heilsa. Vonandi fæ ég þó að kaupa slatta af nýjum og spennandi bókum fyrir og eftir jól.
Um daginn fékk ég nýútkomna, austfirska bók í hendur. Hún heitir Þræðir og er einskonar minningarrit um Hrafnkel A. Jónsson. Virkilega falleg og vel gerð bók sem inniheldur greinar um og eftir Hrafnkel heitinn. Orð Arndísar, samstarfskonu hans til margra ára, lýsa hans vísdómi sennilega betur en hún segir aftan á bókarkápu: "Ég hef engan mann þekkt sem hefur haft jafngóða þekkingu á sögu íslenskrar þjóðar og stundum fannst mér hann hafa verið samtíða fólki á öllum öldum". Þannig var Hrafnkell, fróðleiksbrunnur og einstakt góðmenni.
Líkt og um daginn er rómantíkinn enn alls ráðandi þó núna sé hún að mestu bundin við veðrið og jólaskapið. Við mæðgur erum samtaka í því að skreyta heimilið og baka smákökur. Ótrúlegt hvað jólastússið verður miklu skemmtilegra með aðstoð þessa fjögurra ára gleðigjafa :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2008 | 22:19
skrítin tík, rómantíkin
Í dag ætla ég ekkert að nöldra eða skammast. Ég ætla ekki einu sinni að minnast á efnahagsmál, kreppu, útrásarklúður, banka né neitt sem tengist pólitík. Hef samt heyrt að félagi Steingrímur hafi verið eitthvað í þungu skapi í dag. Hann verður eins og aðrir að hafa gát á tungu sinni þó hann sé mælskur.
En ólíkt Steingrími þá er ég yfirmáta hamingjusöm þessa dagana. Fyrir því liggja ýmsar ástæður. Nokkrar verða nefndar hér en ekki allar Í dag kláraði ég tvær litlar ritgerðir í bókmenntafræði og sendi þær til kennara. Veit ekki hvort eitthvað vit var í þeim, en engu að síður, ég er laus við þær og get farið að hugsa um BA ritgerð og próf. Veðrið hefur verið alveg yndislega gott undanfarna daga, ekta Héraðsveður, froststillur og smá snjór. Jólaljósin spretta upp eins og gorkúlur í hinum ýmsu gluggum og við mæðgur erum komnar í mikið jólaskap. Þetta er eiginlega allt svo rómantískt að það er ekki hægt annað en að vera ástfanginn og ég held svei mér þá að ég sé það bara
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2008 | 13:34
framsóknarsteypan
Það á ekki af framsóknarmönnum að ganga þessa dagana þegar tveir mestu málsvarar hans eru horfnir af þingi. Hvernig væri nú að ríkisstjórnin færi að fordæmi þeirra sunnlensku framsóknarmanna og segði af sér? Nei, það hvarflar ekki að þessum háttvirtu ráðherrum sem halda áfram að draga okkur á asnaeyrunum. En til að fyrirbyggja allan misskilning þá er ég ekki framsóknarmaður. Það er hinsvegar missir að þessum tveimur heiðursmönnum af þingi.
Áfram með framsóknarmenn... það var hreint ótrúlegt að heyra í Valgerði í Kastljósinu í gærkvöldi. Hún ber sko enga ábyrgð á sölu bankanna þó að hún hafi verið ráðherra bankamála þegar þeir voru seldir. Fyrir hvað fá ráðherrar laun ef þeir bera enga ábyrgð í starfi sínu? Í staðinn minnti hún á það roggin á svip að hún hefði nú verið iðnaðarráðherra líka og bjóst örugglega við húrrahrópum vegna álvers og virkjunarframkvæmda hér eystra. Veit konan um ÖLL áhrifin sem þetta álæði hefur haft hér á Austurlandi? Veit hún um könnunina sem Háskólinn á Akureyri gerði um væntanlega fjölgun íbúa og var stungið undir stól af því hún var ekki nógu hagstæð stjórnvöldum? Veit hún hvaða áhrif þetta hefur haft á mannlífið? Nei, auðvitað ekki. Þau áhrif eru ekki nógu hagstæð. Í þessu gullgrafaraæði gleymdist nefnilega að hugsa um fólkið. Áherslan var öll á það að sýna hversu stórkostlegar framkvæmdir þetta væru og önnur eins uppbygging hefði aldrei átt sér stað.
Annað viðtal í Kastljósi gladdi mig hinsvegar mikið. Það var þegar Steingrímur J. sagði frá þeirri vinnu sem verið er að vinna hjá VG við kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu. Hann útilokar ekkert í þeim efnum en tekur engar fljótfærnisákvarðanir. Það er einmitt það sem stjórnvöld þurfa að gera. Engar skyndiákvarðanir sem markast af eiginhagsmunum og græðgi, heldur skoða málin frá öllum hliðum og taka svo ákvörðun með hagsmuni allrar þjóðarinnar í huga. Þarf nokkuð að taka fram hver er mitt átrúnaðargoð í þingsalnum? :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.11.2008 | 11:02
frá endi til upphafs
Aumingja Bjarni. Það er álit mitt og margra annarra að þarna hafi rangur maður sagt af sér þingmennsku. Vissulega gerði hann mistök, en þau mistök eru smámunir hjá þeim viðbjóði sem frú Valgerður hefur framkvæmt...eða horft framhjá á sínum þingmannsferli. Munurinn á þeim er sá að Bjarni hafði manndóm til að biðjast afsökunar og segja af sér en það hefur Valgerður ekki því hún er of siðblind til að sjá mistök sín. Þannig er því miður meirihluti þingmanna og ráðamanna þjóðarinnar. Þess vegna er nauðsynlegt fyrir þjóðina að koma þessu samansafni siðblindra aurapúka úr valdastólunum og hleypa að fólki sem ber hag þjóðarinnar fyrir brjósti.
Undanfarið hafa komið fram margar hugmyndir sem mér finnst vert að skoða betur. Tveir hagfræðispekúlantar segja t.d. að hægt sé að skipta um gjaldmiðil á einni viku. Af hverju ekki skoða það? Félagsfræðingar vilja líta á ástandið sem tækifæri til að efla sprotafyrirtæki og smáiðnað... frábær hugmynd. Einhvern tíma sagði góður maður þessi spaklegu orð: "Endir eins er alltaf upphaf einhvers annars". Á það ekki vel við núna þegar góðæri (sumra) er á enda og margir eru tilneyddir til að breyta um lífsstíl?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.11.2008 | 13:07
Ritgerðir á ritgerðir ofan
Nú má ég til með að hrósa ágætum kennara mínum fyrir liðlegheit. Ég þarf ekki að fara til Reykjavíkur :) Í staðinn má ég skila skýrslu um leikritið Góðverkin kalla sem sagt var frá í síðustu færslu. Þá ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að ég klári bókmenntafræðina án vandræða. Nú er bara að hespa af einni ritgerð um Sandárbókina eftir Gyrði Elíasson og þetta margumrædda leikrit og fara svo að lesa fyrir próf. BA ritgerðin fær líklega að liggja lengur í saltinu.
Til viðbótar þessu ritgerðafargani þá gengur vinna mín að miklu leyti út á það þessa dagana að aðstoða menntskælinga við heimildaleitir því að þeir eru líka í ritgerðasmíðum. Það er virkilega gaman, enda skemmtilegir krakkar upp til hópa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2008 | 12:50
Góðverkin
Jæja, nú er nóg komið af kreppuvæli í bili. Vona bara að þeir sem ábyrgð eiga að bera kunni að skammast sín þó að þeir hafi ekki enn sýnt þjóðinni þá lágmarksvirðingu að biðja hana afsökunar.
Það bar hæst um helgina að ég fór á leiksýningu í Valaskjálf þar sem Leikfélag Fljótsdalshéraðs sýndi gamanleikinn Góðverkin kalla. Mjög skemmtileg sýning í alla staði og efnið passar vel inn í þetta kreppuumhverfi sem nú ríkir. Persónurnar voru úr ýmsum áttum, leikmyndin einföld og handritið fullt af því sem mætti kalla aulahúmor. Leikararnir voru líka missterkir á sviðinu, en einn þeirra bar þó höfuð og herðar yfir aðra. Það var Ásgrímur Ingi, fréttamaður, sem fór hreinlega á kostum í hlutverki hins geðveika bankamanns Jökuls Heiðars. Þetta var svona verk sem kannski skilur ekki mikið eftir sig en engu að síður þrælgóð skemmtun því hláturinn lengir lífið.
Svo er bara að sjá hvort háttvirtum kennara mínum þykir þetta nógu virðulegt verk til að skrifa um það smá skýrslu. Það var nú einmitt tilgangurinn með þessari leikhúsferð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2008 | 14:30
Pólitískur pirringur, kosningar strax!
Það verður ekki annað sagt en útkoma úr nýrri skoðanakönnun Gallup hafi verið gleðileg fyrir okkur sem höllum til vinstri. Loksins er Sjálfstæðisflokkurinn að fá þann rassskell sem hann á skilið. Þess vegna hvet ég alla sem mögulega geta til að taka þátt í mótmælagöngu gegn stjórnvöldum kl. 3 í dag. Spurning hvort ég fer ekki einsömul í mótmælagöngu um Egilsstaði. En við viljum kosningar eigi síðar en núna strax! Þessir háu herrar hafa fengið sitt tækifæri sem þeir hafa klúðrað all svakalega. Það er kominn tími til að hleypa öðrum að!
Í fúlustu alvöru þá held ég að það sem hrjáir Davíð Oddsson sé einhverskonar Hitlersheilkenni. Maðurinn hefur haft allt of mikil völd í of langan tíma. Það er bara ekki hollt fyrir nokkurn mann að hafa svona mikil völd. Nú ætti hann að hafa vit á því að stíga til hliðar og hætta þessu andsk. baktjaldamakki. Aðrir sjálfstæðismenn eru þvílíkar strengjabrúður í kringum hann að það er hreint og beint grátlegt að sjá það. Ég meina það, hafa sjálfstæðismenn enga sjálfstæða hugsun???
Þetta var pirringspistillinn. Mikið hefur verið talað um Ólaf Stefánsson og viðtal Evu Maríu við hann síðustu daga. Ég er ein af þeim sem heillaðist gjörsamlega af manninum og ótrúlegri speki hans. Það væri gaman að sjá slíka viskubrunna í stjórnmálum. Hann taldi m.a. rétt að ýmsir stjórnmálamenn og aðrir sem bera ábyrgð á efnahagsástandinu ættu að stíga fram og biðja þjóðina afsökunar eins og hann hefði sjálfur gert eftir að hafa spilað illa á stórmóti. Mér vitanlega hefur enginn ráðamaður tekið þessi orð til sín. Það þýðir að handboltamaðurinn og heimspekingurinn Ólafur er mun ábyrgðarfyllri maður en þær aumu aurasálir sem stýra þjóðarskútunni.
Ég var annars mjög stolt af sveitungum mínum í Útsvari í gærkvöldi. Það má segja að þau hafi rúllað Eyjapeyjunum upp með stæl. Nú bíð ég bara eftir að Fljótsdalshérað mæti Hornfirðingum held samt að í þeirri stöðu myndi ég halda með Hornfirðingum.
Einn gengisfallinn brandari í lokin: Hvað gerist ef þú setur apa inn í herbergi þar sem fyrir eru Davíð Oddsson og George Bush? .greindarvísitalan hækkar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2008 | 12:11
af ergi er nú önd mín sár...
Nú er ég reið og ég er örugglega ekki sú eina sem finn fyrir þessari vondu tilfinningu. Ekki svo að skilja að kreppan sé farin að bitna illa á mér eða mínum nánustu, heldur á ég mjög erfitt með að kyngja svona helv. óréttlæti!
Þessir háttvirtu bankastjórar sem lifðu í vellystingum með fleiri tugi milljóna í laun á mánuði hafa gert í buxurnar og ætlast til þess að við, sauðsvartur almúginn, þrífum skítinn eftir þá! Þessi apparöt sem afsökuðu ofurlaun sín með áríðandi verkefnum og mikilli ábyrgð ættu að sjá sóma sinn í því að axla þessa svakalegu ábyrgð þegar á þarf að halda. Neinei þá eru þeir skyndilega fríir og frjálsir nema þeir eru með skítugar brækurnar á hælunum.
Réttlætiskennd minni er svo stórlega misboðið að mér er skapi næst að flytja til Noregs. Við, sauðsvartur almúginn, fundum minnst fyrir útrásinni og berum nákvæmlega enga ábyrgð á henni, hvers vegna í ósköpunum eigum við að sitja í súpunni þegar allt er farið í vaskinn??? Mín vegna mega þessir háu herrar vera áfram með allt niður um sig . ég ætla EKKI að þrífa óhroðann eftir þá!
Nú er nóg komið af pirringi í bili. Það er ekki hægt að vera reiður í svona fallegu veðri. Það er hreint yndislegt að sjá Fellin speglast í Lagarfljótinu og sjá sólina glampa á snævi þakinni Fellaheiðinni. Slík fegurð gefur manni endalausa orku og trú á lífið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.10.2008 | 11:56
Í draumi sérhvers manns...
Í draumi sérhvers manns er fall hans falið þetta ljóð Steins Steinarrs hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá mér, ekki síst þessi spaklega ljóðlína. Hver hefur ekki lent í því að falla vegna drauma sinna? Hver hefur ekki séð drauma sína gufa upp og hverfa út í eilífðina? En þó að draumarnir verði manni oft að falli þá held ég að lífið væri óttalega tómlegt án þeirra. Held að þeir séu hreint og beint nauðsynlegir til að við getum sett okkur hin ýmsu markmið í lífinu.
En niður á jörðina í gærkvöldi ætlaði ég að fara á smá uppákomu á Héraðsskjalasafninu í tilefni aldarafmælis fyrrnefnds Steins Steinarrs. Heimasætan, sem var nýkomin heim frá pabba sínum, var þó ekki alveg sátt við að mamman væri á einhverju útstáelsi. Þegar ég tilkynnti henni að ég ætlaði að skreppa út og pabbi hennar myndi koma og lesa fyrir hana tók litla stýrið um hálsinn á mér og sagði með grátstafinn í kverkunum: mamma, viltu bara vera hjá mér í kvöld? Það er skemmst frá því að segja að sú gamla bráðnaði gjörsamlega og hugsaði í anda Gunnars á Hlíðarenda Yndisleg er dóttirin svo ég fer ekki fet.
Ég tók ritgerðarefnið mitt úr salti í gærmorgun. Hvort sem það var útvarpsmessunni sem hljómaði á bak við eða einhverju öðru að þakka þá skyndilega kviknaði smá ljós. Ég skildi smávegis og ætla að reyna að blása í þær litlu viskuglæður um leið og færi gefst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar