6.10.2008 | 10:53
Ljóðin allt um kring
Enn ein helgin að baki og ég held svei mér þá að veturinn sé líka að baki... a.m.k. um stundarsakir. Núna er ósköp milt veður sem minnir helst á apríldag.
Hvað um það, helgin var fín þó að ekki næði ég að klára ljóðagreininguna eins og stefnt var að. Það skipti svosem ekki öllu máli því skilafresturinn var framlengdur til föstudags. Annars er ég langt komin með ritgerðina...held jafnvel að það geti verið einhver smá glóra í henni hjá mér :) Klára hana eitthvert næsta kvöldið.
Aðeins að vinnunni, en þar snýst margt um Stein Steinarr þessa dagana. Ég er að undirbúa Steinsdaga á bókasafninu og í hinni vinnunni erum við að skipuleggja smá uppákomu til minningar um sama Stein. Þeim mun meira sem ég fræðist um hann þeim mun meiri aðdáandi verð ég. Ekki nóg með að maðurinn sjálfur hafi verið mjög sérstakur og kannski misskilinn af sinni samtíð, heldur eru mörg ljóð hans hrein snilld...nefni bara "Í draumi sérhvers manns" sem dæmi. Það er bæði snilldarlega ort og hárbeittur sannleikur sem liggur þar að baki.
Smá pæling að lokum... eiga þeir Steinn Steinarr og Sigurður Pálsson eitthvað sameiginlegt í sinni ljóðagerð?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.10.2008 | 12:30
lítið eitt um kvennaskap
Ég hef ekki enn náð þeim þroska láta neikvæð viðbrögð annarra ekki hafa áhrif á mig. Ein neikvæð athugasemd eða eitt óþægilegt símtal getur þannig gjörsamlega eyðilagt fyrir mér heilan dag! Nú er tækifæri til að breyta þessu. Eftir ágæta byrjun á deginum átti ég stutt símtal við konu sem ég þekki ekki neitt umfram nafnið. Til að gera langa sögu stutta þá náði hún gjörsamlega að hakka mig í spað þannig að ég var ekki meira virði en rykkorn á gólfinu eftir samtalið.
En eins og ég sagði, nú er tækifæri til að rísa upp sterkari en áður. Konutuskan hefur örugglega einhverjar ástæður fyrir fúllyndi sínu... túrverki? ...breytingaskeið? konur hafa endalausar afsakanir fyrir skapsveiflum sínum :)
Hennar fýla er hennar mál og kemur mér ekki við.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.9.2008 | 09:59
Af lærdómi og læraþukli
Þá er fyrstu viku minni á skjalasafninu lokið án stórra áfalla. Ég hef þegar lært heilan helling og þykist m.a. hafa fengið skýringu á þeirri ómældu visku sem skjalaverðir eru þekktir fyrir. Allt þetta magn upplýsinga, gagnlegra og ógagnlegra, sem þeir hafa í höndunum á hverjum degi hlýtur að einhverju leyti að síast inn í heilabú sem áður voru kannski lítið eða ekki notuð. Hvort sem það hefur verið svona mikið af ónýttu plássi í mínu heilabúi eða hvort ég er bara svona móttækileg fyrir upplýsingum þá þykist ég nú þegar vera orðin mun vitrari en áður.
Stútfull af nýrri visku skokkaði ég einn hring í skóginum á sunnudaginn. Þegar komið var að því að teygja á lúnum vöðvum í fótunum fann ég skyndilega hvernig small í... greinilegt að eitthvað hafði gefið sig. Eftir verkjatöflu og svefnlitla nótt fór ég með skankann til læknis. Hann þuklaði og þreifaði þannig að mér leið eins og pattaralegum ásetningshrút. Það er reyndar með því neyðarlegra sem ég hef lent í um dagana að standa á brókinni fyrir framan þennan fjallmyndarlega lækni á meðan hann þuklaði á lærinu á mér... það er eiginlega varla orðið fyndið ennþá En niðurstaðan úr þessum læraþreifingum varð sú að vöðvi aftan í lærinu hefði tognað illilega, hugsanlega rifnað aðeins. Ég skyldi sleppa öllum hlaupum næstu vikurnar og bara taka því rólega.... tek ég hlutunum einhvern tíma öðruvísi en rólega??? hefur stundum skilist að það sé varla bætandi á rólegheit mín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2008 | 12:46
bænin virkar
Nietse kallinn hafði rangt fyrir sér... Guð er ekkert dauður! Hvort sem það er bænum mínum eða einhverju öðru að þakka þá er ég að byrja að vinna á Héraðsskjalasafninu eftir 45 mínútur. Síðan það var afráðið að ég tæki sæti Dísu næsta mánuðinn þá hef ég verið full tilhlökkunar þó að einhver smá kvíði sé farinn að gera vart við sig núna. Er það ekki ósköp eðlilegt þegar maður er í þann veginn að takast á við eitthvað nýtt? Fyrstu vikuna verðum við Guðgeir bara tvö á safninu þannig að hann fær þann heiður að kenna mér og svara mestu aulaspurningum mínum. Hvað um það, þetta verður bara gaman og fjárhagurinn ætti að vænkast.
Sá lærdómur sem ég hef dregið af þessu ferli er að bænin virkar :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.9.2008 | 10:30
"Númer 12 í röðinni"
Geta sum fyrirtæki verið of stór? Mér finnst a.m.k. betra að skipta við smærri fyrirtæki eða stofnanir sem veita persónulegri þjónustu. Fyrir skemmstu þurfti ég að hringja í þjónustuver Símans... veldu 1 fyrir þetta, 2 fyrir hitt osfrv. og loksins þegar ég hafði valið langa talnarunu eftir tilsögn vélmennis kom annað vélmenni sem sagði "Þú ert númer 12 í röðinni". Þá lagði ég á og er ekki ennþá búin að reyna aftur að ná sambandi við alvöru manneskju hjá þessu risavaxna fyrirtæki.
En að frátöldu þessu smávægilega ergelsi er engin þörf að kvarta þegar blessuð sólin skín og mórautt Lagarfljótið speglar Fellin svo unun er á að horfa. Ég efast um að nokkur hafi betra útsýni úr vinnunni sinni heldur en ég úr litlu bókaverjukompunni í ME.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2008 | 12:24
Nútímakonan
Þá er afstaðin ein annasamasta vika örþreyttrar nútímakonu í langan tíma. Undanfarnir dagar hafa einkennst af afmælisstandi, skólabyrjun og ritgerðarvinnu auk alls annars. Stelpuafmælið á miðvikudag fór vel fram að öllu leyti, enda var samankomið í Hléskógunum úrval ungra öndvegiskvenna sem án efa eiga eftir að láta að sér kveða í framtíðinni. Það samkvæmi er komið á spjöld sögunnar sem "the pink show" vegna ráðandi litar í fatavali veislugesta. Það sló reyndar smá óhug að móðurinni þegar afmælisbarnið fór að tala um að bjóða líka strákunum í fimm ára afmælið sitt eftir ár. Ekki víst að það verði eins bleikt :) Afmælinu lauk svo formlega á laugardag með heimsókn ættingja sem búsettir eru hér á Héraði. Það samkvæmi fór líka friðsamlega fram þó afmælisbörnin væru tvö, því auk Evu Pálínu átti Svavar Páll afmæli í vikunni.
Ég náði þó að skreppa til Reykjavíkur á fimmtudeginum. Tel mig heppna með þann dag því daginn eftir lá allt innanlandsflug niðri vegna veðurs. Þessi ferð var annars kærkomin afslöppunarferð og það var ósköp ljúft að koma aftur í skólann þó að það væri í mýflugumynd. Við Halldór kennari áttum langan og góðan fund. Hann er mjög sáttur við það sem komið er og er óþreytandi við að hvetja mig áfram þegar allt virðist komið í hnút. Held að ég hefði ekki getað fengið betri leiðbeinanda :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.8.2008 | 12:22
Daglegt líf
Suma daga er meira að gera en aðra daga og sumar vikur eru að sama skapi annasamari en aðrar vikur. Þessi vika sem nú er hálfnuð hefur verið allsvakaleg hvað það varðar. Ég er ekkert óvön því að hafa í mörg horn að líta og líkar það alveg prýðilega, en þegar mikið er um að vera á öllum vígstöðvum þá verður maður svolítið þreyttur. En svona er þetta örugglega hjá öllum konum þannig að ekki ætla ég að kvarta, enda er ég svo heppin að hafa gaman af því sem ég er að fást við.
Eitt af því sem ég hef verið að fást við undanfarna daga, ásamt öllu öðru, er að undirbúa afmæli Evu Pálínu. Hún hélt smá afmælisveislu heima í sveitinni hjá ömmu sinni og afa um helgina og í dag er komið að stelpupartíinu, "the pink show". Ég á semsagt von á hálfri leikskóladeild heim í pizzuveislu síðar í dag. Það verður bara gaman en mikið ósköp hlakka ég til þegar partíið verður afstaðið. Í fyrramálið ætla ég svo að fara í "slökunarferð" til Reykjavíkur. Já, það hljómar öfugsnúið en svona er það nú samt. Aðal erindið er reyndar að hitta Halldór, kennara minn, til skrafs og ráðagerða varðandi BA ritgerðina sem er í vinnslu. Vegna þessa fundar hef ég verið mikið með hugann við ritgerðina, en er samt ekki alveg tilbúin með allt efnið sem ég ætlaði að hafa tilbúið. Klára það í kvöld eftir bleika partíið, þegar afmælisbarnið verður komið í háttinn :)
Vegna ritgerðarvinnunnar hef ég verið eins og grár köttur á héraðsskjalasafninu undanfarna daga og vikur. Það hefur borið þann árangur að fyrir skemmstu varpaði Hrafnkell skjalavörður fram þeirri stórkostlegu hugmynd að ég tæki sæti Dísu í forföllum hennar. Það þarf ekki að orðlengja það frekar að ég hef legið á bæn síðan því að skjalasafnið er einn af mínum uppáhaldsstöðum. En í þessu eru enn mörg "ef" og "kannski" og óvíst um samþykki stjórnarinnar. Það er því eins gott að halda áfram að biðja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2008 | 10:58
Þar sem útlitið skiptir ekki máli
Þetta er svolítið skondin frétt.... Ákall til ófríðra kvenna Bæjarstjóri afskekkts kolanámuþorps í Ástralíu hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að hafa sagt að ófríðar konur bæjarins njóti mögulega góðs af því hve fáar konur búa í honum. John Molony sagði í viðtali sem birtist í Townsville Bulletin í síðustu viku að í bænum séu um fimm karlar á hverja stúlku. Mætti ég stinga upp á því að konur sem hafi ekki útlitið með sér komi til Mount Isa. Fjöldi kvartana - bæði frá körlum og konum - hefur borist bæjaryfirvöldum í kjölfar ummæla bæjarstjórans. Hann hefur hins vegar neitað að biðjast afsökunar á ummælunum. Hann hafi aðeins verið að segja satt og rétt frá hvernig málum væri háttað í bænum, sem er í Queensland. Stærstu neðanjarðarnámur heims eru í Mount Isa, sem er í um 1800 km frá Brisbane. Árið 2006 bjuggu aðeins 819 konur á aldrinum 20-24 í bænum, en heildaríbúafjöldinn þá var 21.421. Þarna er kominn vonarneisti fyrir konur sem ekki líta út samkvæmt nútíma fegurðarstöðlum. Aldrei að vita nema maður bregði sér til Ástralíu þegar maður verður leiður á einverunni :)
Bloggar | Breytt 19.8.2008 kl. 09:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2008 | 12:34
Skrípaleikurinn í borgarstjórn
Enn einn meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur. Ég þakka mínum sæla fyrir að búa ekki í borginni, en fyrir þá sem fylgjast með úr fjarska er þetta eins og léleg gamanþáttaröð. Það er hreint ótrúlegt hvað fólk getur teygt sig langt með græðgi og valdahroka að leiðarljósi. "Við viljum aðeins það sem borgarbúum fyrir bestu" segja sjálfstæðismenn einum rómi. Ef vilji borgarbúa væri tekinn með í reikninginn myndi Dagur B þá ekki setjast í borgarstjórastólinn með félaga sína í Tjarnarkvartettinum í kringum sig? Mig minnir a.m.k. að kannanir hafi ítrekað sýnt hrun sjálfstæðisflokksins þannig að samfylkingin fengi hreinan meirihluta. Þetta er fyrir löngu orðinn skrípaleikur sem meira að segja er of vitlaus til að vera fyndinn. Held svei mér þá að Bachelor þættirnir hafi verið gáfulegri en þessi farsi!
Hvað um það, ég er bara fegin að vera á öðru landshorni. Við höfum þó haft sama bæjarstjórann allt kjörtímabilið og lengur til :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2008 | 09:39
Önnur bók
Aðeins meira um nýútkomnar bækur. Fyrir ekki svo ýkja löngu síðan kom út bókin Eftir skyldu míns embættis, prestastefnudómar Þórðar biskups þorlákssonar árin 1675-1697, samantekin af mínum ágæta kennara Má Jónssyni. Þetta er bók sem ég þykist eiga örlítinn hluta í ásamt öðrum nemendum í handritalestri á vormisseri 2007. Í því námskeiði fengum við einmitt það verkefni að skrifa upp kafla úr dómum Þórðar. Mjög skemmtilegt verkefni og lærdómsríkt þannig að ég efast ekki um að bókin er bæði skemmtileg og fróðleg.... fyrir þá sem á annað borð hafa gaman af sagnfræði.
Bloggar | Breytt 14.8.2008 kl. 09:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar